Sléttuvegur 29 íbúð 210

Íbúðin verður sýnd þriðjudaginn 1. september frá kl. 14:00 – 14:30

Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 þriðjudaginn 8. september 2026

Mjög hugguleg og vel um gengin tveggja til þriggja herbergja íbúð á annarri hæð, merkt 01-0210 er til sölu. Eignin er skráð 96,7m², sem skiptist í íbúð skráð 89,4 m² og geymslu í kjallara skráð 7,3m² merkt 01-0045. Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara merkt 01-B10.

  • Veggir og loft, reiknað með endurmálun en íbúð lítur vel út og er vel um gengin.
  • Gluggar eru upprunalegir en virðast í góðu ástandi.
  • Gler virðist í góðu lagi.
  • Gólfefni - eikarparket á alrými og herbergi, upprunalegur öryggisdúkur á baði, tréflísar á svölum, dúkur á þvottahúsi. Parket er upprunalegt en lítur afar vel út.
  • Ofnar eru upprunalegir, eins og aldur eignar gefur tilefni til.
  • Innihurðir eru upprunalegar eikarhurðir.
  • Opið eldhús, viðarlit upprunaleg innrétting með kantlímdum borðplötum, gott vinnu- og skápapláss. Uppþvottavél fylgir.
  • Stállitaður bakarofn, keramík helluborð. Ísskápur fylgir.
  • Fataskápar, eikarspónn, í forstofu og svefnherbergi, líta vel út.
  • Baðherbergi er með upprunalegri eikar innréttingu, upprunalegur öryggisdúkur á gólfi, flísar á veggjum, sturtuklefi. Mjög vel um gengið.
  • Þvottahús inn af eldhúsi, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, hillur og ágætt rými.
  • Svalir eru stórar og rúmgóðar til suðurs, gott útsýni, lokað með glereiningum í álrennum. Svalagólf með viðarflísum.
  • Góð geymsla í kjallara, hillur.
  • Bílastæði í mjög vönduðum bílakjallara fylgir íbúðinni. Hleðslustöð fylgir.
  • Sameign inni:
    • Veggir og loft - Málað í góðu standi.
    • Gólfefni - Teppi á göngum en flísar á aðalanddyri, mjög gott ástand.
  • Sameign úti:
    • Útveggir - Steinsteypt, einangrað og klætt að utanverðu með lituðu áli.
    • Bílastæði - Fjöldi bílastæða á lóð hússins, ekki sérmerkt.

Framreiknað söluverð er kr 67.000.000,-


  • Miðast við byggingarvísitölu f. ágúst 2026, 1032,3 stig.
  • Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
  • Húsgjald er kr _________,- á mánuði.
  • Sameiginlegt þvottahús er í kjallara með þvottavél og þurrkara.
  • Húsið er tvískipt, hús nr. 29 er 4 hæðir og hús nr. 31 er 5-6 hæðir, á milli þeirra er einnar hæðar tengibygging. Kjallari er undir húsinu sem að hluta er bílakjallari. Húsið er steinsteypt, einangrað að utanverðu og klætt sléttum og báruðum álplötum. Þak er einhalla og klætt sléttum málmplötum. Þak tengibyggingar er flatt og klætt þakdúk. Í matshlutanum eru 58 íbúðir, geymslukjallari og bílakjallari fyrir 58 bíla
  • Margar lyftur eru í húsinu.
  • Gengið inn í íbúðir frá upphituðum svalagöngum.
  • Bílakjallari með 58 rúmgóðum stæðum er undir húsinu. Að auki er þvottastæði. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.