Aflagrandi 40 íbúð 302
Íbúðin verður sýnd fimmtudaginn 20 ágúst frá kl. 14,00 – 14,30
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 fimmtudaginn 27 ágúst 2026
- 2ja. herbergja mjög mikið endurnýjuð íbúð á 3. hæð í suðaustur, merkt 0302 er til sölu.
- Íbúðin er að birt stærð skv. HMS 69,0 m².
- Nýtt parket er á gangi, stofu og eldhúsi. Flísar á baðherbergi og korkflísar á geymslu.
- Ný eldhúsinnrétting, dökk eik og plastlagðir efri skápar. Öll tæki ný.
- Innihurðir eru spónlagðar með beykispæni.
- Baðherbergi er allt nýtt, allt flísalagt, walk in sturta með hertusturtugleri, ný innrétting með innbyggðir handlaug. Tengi fyrir þvottavél í innréttingu.
- Svölum er lokað með gleri í álprófílum. Flísar á svalagólfi.
- Sérgeymsla er innan íbúðar, auk geymslu í kjallara.
- Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð með þvottavél og þurrkara.
- Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni.
Framreiknað verð er kr. 46,300,000,-
- Miðast við byggingarvísitölu í júlí 2026, 1,032,3 stig.
- Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
- Aflagrandi 40 er 12 hæða hús með 60 íbúðum. Húsið var afhent til eigenda 1989.
- Tvær lyftur eru í húsinu nýlega endurnýjaðar.
- Bílskýli er í kjallara hússins og búið er að fækka og stækka stæðin. Stæðin eru leigð til íbúa á vegum húsfélagsins.
- Í dag eru 36 bílastæði í bílahúsi, þar af er búið að leggja fyrir rafmagni í 13 þeirra.
- Sameiginlegur salur er á 11. hæð.
- Á jarðhæð hússins er þjónustumiðstöð sem rekin er af Reykjavíkurborg og eign hennar.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.