Sléttuvegur 23 íbúð 405
Íbúðin verður sýnd mánudaginn 13 október frá kl. 14,00 – 14,30
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 mánudaginn 20 október 2025
- 3ja herbergja íbúð á 4. hæð, merkt 04-05, er til sölu. Íbúðin er 93 m².
- Sér geymsla er í kjallara.
- Parket úr eik er á stofu, herbergjum, og gangi. Vinyl öryggisdúkur á baði og þvottahúsi..
- Innihurðir, eldhúsinnrétting og skápar eru spónlagðir með eikarspæni.
- Keramik helluborð. Bakarofn. Háfur yfir helluborði.
- Uppþvottavél og ísskápur með frystir fylgir með.
- Baðherbergisveggir eru flísalagðir í hæðina 210 cm. Innrétting er með innbyggðri handlaug. Sturtuklefi úr áli og hertu gleri.
- Svölum er lokað með hertu gleri. Svalagólf er flísalagt.
- Íbúðin er í góðu standi. Glæsilegt útsýni.
Framreiknað verð er kr 61.000.000,-
- Miðað er við byggingarvísitölu fyrir september 2025, 1006,6 stig.
- Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
- Sléttuvegur 23 er 6 hæða hús tengt við Sléttuveg 19-21 með sameiginlegum sal.
- Í húsinu eru samtals 70 íbúðir. Undir húsinu er bílageymsla með dekkjageymslu og þvottaaðstöðu.
- Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með lituðu áli.
- Sameiginlegt þvottahús er í kjallara með þvottavél og þurrkara.
- Eitt stæði fylgir íbúðinni. Snóbræðsla er í göngustígum fyrir framan húsið.
- Húsið var afhent til eigenda 2007.
- Húsvörður er í húsinu.
- Húsgjald er kr. _________,- á mánuði.
- Ath. Veggir að þriðja herberginu hafa verið fjarlægðir. Stofan stækkuð sem svarar stærð herbergis.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.