Sléttuvegur 19 íbúð 113
Íbúðin verður sýnd þriðjudaginn 16 júní frá kl. 13:30 – 14:00
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 Þriðjudaginn 23 júní 2026
- Þriggja herbergja íbúð á 1. hæð, merkt 01-13 er til sölu. Íbúðin er 88,4m² með geymslu í kjallara og bílastæði í bílakjallara.
- Veggir og loft, reiknað með endurmálun en íbúð lítur vel út og er vel um gengin.
- Gluggar eru upprunalegir en virðast í góðu ástandi.
- Gler virðist í góðu lagi.
- Gólfefni - eikarparket á alrými og herbergjum, upprunalegur öryggisdúkur á baði, flísar á svölum, dúkur á þvottahúsi. Parket er upprunalegt en lítur afar vel út.
- Ofnar eru upprunalegir, eins og aldur eignar gefur tilefni til.
- Innihurðir eru upprunalegar eikarhurðir.
- Opið eldhús, viðarlit upprunaleg innrétting með kantlímdum borðplötum, gott vinnu- og skápapláss. Uppþvottavél fylgir.
- Stállitaður bakarofn, keramík helluborð. Ísskápur fylgir.
- Fataskápar, eikarspónn, í forstofu og svefnherbergi, líta vel út.
- Baðherbergi er með upprunalegri eikar innréttingu, upprunalegur dúkur á gólfi, flísar á veggjum, sturtuklefi. Mjög vel um gengið.
- Þvottahús og búr inn af eldhúsi, pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
- Svölum eru mjög stórar og rúmgóðar, lokað með glereiningum í álrennum, þarfnast hreinsunar og viðhalds. Svalagólf flísalagt.
- Góð geymsla í kjallara, hillur.
- Bílastæði í mjög vönduðum bílakjallara fylgir íbúðinni. Lagnir og tengibúnaður til staðar fyrir hleðslustöð.
- Sameign inni:
- Veggir og loft - Málað í góðu standi.
- Gólfefni - Teppi á göngum en flísar á aðalanddyri, mjög gott ástand.
- Sameign úti:
- Útveggir - Steinsteypt, einangrað og klætt að utanverðu með lituðu áli.
- Bílastæði - Fjöldi bílastæða á lóð hússins, ekki sérmerkt.
Framreiknað söluverð er kr 56.500.000,-
- Miðast við byggingarvísitölu f. maí. 2026, 1030,6 stig.
- Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
- Húsgjald er kr _________,- á mánuði.
- Sameiginlegt þvottahús er í kjallara með þvottavél og þurrkara.
- Sléttuvegur 19-21-23 er steinsteypt 3 og 6 hæða fjölbýlishús, einangrað að utanverðu og klætt með lituðu áli.
- Margar lyftur eru í húsinu.
- Gengið inn í íbúðir frá upphituðum svalagöngum. Húsvarðaríbúð og rúmgóður salur er í eigu hússins.
Upphitað bílskýli með 70 rúmgóðum stæðum er undir húsinu. Að auki er þvottastæði. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.