Sléttuvegur 29 íbúð 209
Íbúðin verður sýnd miðvikudaginn 1. apríl frá kl. 13,30 – 14,00
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 fimmtudaginn 9. apríl 2026
- Rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð, merkt 02-09, er til sölu. Íbúðin er 93,3 m² ásamt 7,3 m² geymslu í kjallara.
- Íbúðin var afhent ný til eigenda 2011.
- Parket úr eik er á stofu, herbergjum, eldhúsi og gangi. Öryggisdúkur á baði og þvottahúsi.
- Innihurðir, eldhúsinnrétting og skápar eru spónlagðir með eikarpæni.
- Spanhelluborð og bakaraofn. Háfur er yfir helluborði.
- Borðplötur í eldhúsi eru úr graní innbyggðu spanhelluborði og vask.
- Uppþvottavél og ísskápur með frysti og klakavél fylgir með. Öll tæki eru lítið notuð.
- Baðherbergisveggir eru flísalagðir í hæðina 210 cm.
- Sturtuklefi er úr áli og hertu gleri. Þvottahús er inn af eldhúsi.
- Svölum er lokað með hertu gleri. Svalagólf er flísalagt.
- Rafmagnsrúllugardínur eru fyrir gluggum í stofu og herbergjum.
- Loftlampar fylgja með í stofu og svefnherbergi.
- Stæði í bílgeymslu fylgir íbúðinni.
Framreiknað verð er kr 66.500.000.-
- Miðað er við byggingarvísitölu fyrir mars 2026, 1029,6 stig.
- Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
- Sléttuvegur 29 er 4 hæðir, tengt við Sléttuveg 31 með sameiginlegum sal.
- Salurinn eru um 100 m² með snyrtingum og eldhúsi.
- Í húsinu eru samtals 58 íbúðir. Íbúð húsvarðar er eign húsfélagsins.
- Undir húsinu er upphituð bílageymsla með sameiginlegu þvottastæði og dekkjageymslu.
- Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með lituðu áli.
- Bílastæði og göngustígar eru með snjóbræðslu.
- Lóðin sunnan við hús er hellulögð með grasi og trjágróði. Mjög snyrtileg lóð.
- Húsið var afhent til eigenda 2011.
- Húsvörður er í húsinu.
- Húsgjald er kr. _________,- á mánuði.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.