Sléttuvegur 21 íbúð 307

Íbúðin verður sýnd miðvikudaginn 16, október frá kl. 14,00 – 14,30

Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 miðvikudaginn 23, október 2024



  • 3ja herbergja aíbúð á 3. hæð, merkt 03-07. Íbúðin er 97,2 m² samkvæmt fasteignaskrá Íslands.
  • Sér geymsla með hillum er í kjallara 7,0 m².
  • Parket úr eik er á stofu, herbergjum, eldhúsi og gangi. Vinyldúkur á baði og þvottahúsi.
  • Innihurðir, eldhúsinnrétting og skápar eru spónlagðir með eikarspæni.
  • Keramik helluborð. Háfur er yfir helluborði.
  • Uppþvottavél og ísskápur með frystir og kæli fylgir með.
  • Baðherbergisveggir eru flísalagðir í hæðina 210 cm. Innrétting er með innbyggðri handlaug. Speglaskápur er yfir handlaug. Sturtuklefi er úr áli og hertu gleri. Þvottahús er inn af eldhúsi.
  • Svölum er lokað með hertu gleri. Svalagólf er flísalagt.
  • Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með lituðu áli.
  • Sameiginlegt þvottahús er í kjallara með þvottavél og þurrkara.
  • Íbúðin er í góðu standi.


Framreiknað verð er kr 60.200.000,-

  • Miðað er við byggingarvísitölu fyrir sept. 2024, 967,3 stig.
  • Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
  • Sléttuvegur 21 er 3ja hæða hús tengt við Sléttuveg 23 með sameiginlegum sal. Í húsinu eru samtals 70 íbúðir. Undir húsinu er bílageymsla. Eitt stæði fylgir íbúðinni.
  • Húsið var afhent til eigenda 2007.
  • Húsvörður er í húsinu.
  • Húsgjald er kr. _________,- á mánuði.