Aflagrandi 40 íbúð 1101
Íbúðin verður sýnd mánudaginn 7. júlí frá kl. 13:00 – 13:30
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 mánudaginn 14. júlí 2025
- Þriggja herbergja íbúð á 11. hæð, merkt 11-01 er til sölu. Íbúðin er 80,0 m².
- Sérgeymsla 3,5 m² er innan íbúðar og í kjallara er einnig geymsla.
- Á stofu, eldhúsi, svefnherbergi og gangi er eikarparkett. Korkflísar á geymslu.
- Flísar á baðgólfi og veggjum, handklæðaofn, sturtuklefi. Hitastýrð blöndunartæki. Tengi fyrir þvottavél.
- Upprunaleg eldhúsinnrétting með eikarspæni, harðplast á borðplötum.
- Innihurðir og fataskápar eru spónlagðir með beykispæni.
- Lokaðar svalir með einföldu gleri í álprófílum, nokkura ára gamalt
- Glæsilegt útsýni.
- Reiknað með endurmálun en íbúðin lítur vel út.
Framreiknað söluverð er kr. 47.000.000,-
- Miðast við byggingarvísitölu f. júní. 2025, 1006,1 stig.
- Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
- Húsgjald er kr _________,- á mánuði.
- Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð með þvottavél og þurrkara.
- Aflagrandi 40 er 12 hæða hús með 60 íbúðum. Húsið var afhent til eigenda 1989.
- Tvær lyftur eru í húsinu.
- Bílskýli er í kjallara hússins, þar sem hægt er að leigja stæði. Sameiginlegur salur er á 11. hæð.
- Á jarðhæð hússins er þjónustumiðstöð sem rekin er af Reykjavíkurborg.
- Húsvörður er í húsinu.
- Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.