Bólstaðarhlíð 45 íbúð 502

Íbúðin verður sýnd miðvikudaginn 24. maí frá kl. 14,00 – 14,30

Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 miðvikudaginn 31. mars 2023

  • 3ja herbergja íbúð á 5. hæð, merkt 05-02 er til sölu. Íbúðin er 85,4 m².
  • Geymsla er innan íbúðar.
  • Á stofu og gangi er eikarparket. Korkflísar á herbergjum. Flísar á baðgólfi. Eldhúsinnrétting og fataskápar er spónlögð með ljósum spæni.
  • Baðherbergið er nýlega endurnýjað. Veggir í baðherbergi eru flísalagðir. Sturtuhorn úr hertu gleri og áli. Innrétting með upphækkun (þvottaskúffu) fyrir þvottavél.Handlaug og blöndunartæki nýleg.
  • Svölum er lokað með einingum frá Gluggum & Garðhús. Tvöfalt gler.
  • Sameiginlegt þvottahús er á 1. hæð með þvottavél og þurrkara.
  • Íbúðin er í ágætu standi.
  • Glæsilegt útsýni er í austur og norður, Esjan, Hengill og Bláfjöll..

Framreiknað verð er kr. 44.900.000,-

  • Miðast við byggingarvísutölu í apríl 2023, 914,4 stig.
  • Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
  • Bólstaðarhlíð 45 er sjö hæða hús með 32 íbúðum. Húsið er tengt Bólstaðarhlíð 43 sem er þjónustusel á vegum Reykjavíkurborgar.Húsið var afhent til eigenda 1986-1987.
  • Húsgjald er kr _______ ,- á mánuði.
  • Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.