15.04.2025 | Fréttir

AÐALFUNDUR

BYGGINGASAMVINNUFÉLAGS SAMTAKA ALDRAÐRA bsvf

Verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl 2025 kl. 14:00 í safnaðarheimili Háteigskirkju, Háteigsvegi 27 – 29, 105 Reykjavík.

Á aðalfundi skal leggja fram ársreikning og skýrslu skoðunarmanns/manna ásamt skýrslu stjórnar um hag félagsins:

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar

  2. Staðfesting ársreiknings

  3. Kjör stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna

  4. Þóknun stjórnarmanna og skoðunarmanna fyrir næsta ár

  5. Ákvörðun félagsgjalda fyrir næsta ár

  6. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund samkvæmt lögum og félagssamþykktum

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn.

Stjórnin